Wednesday, November 5, 2008

köttur og mús

hér í sveit hefur það tíðkast að halda ketti , þeir eiga síðan að sjá um að mýs haldi sig úti. Á Hraunhafnarsetrinu er þetta ekki svona. Að vísu er hér háaldraður og virðulegur köttur, svartur og glansandi. Hann er mikill músavinur. Því er það þannig að þegar hausta tekur þá bíður hann þeim inn sleppir þeim lausum svo þær geti virt fyrir sér þessi miklu húsakynni. Sem þær svo gera. Kötturinn fær sér kattarmat og mjólk og leggur sig fram á næsta kvöld, þá er kominn tími til að bjóða næstu mús. Húsfreyjan á setrinu er ekki jafnánægð með þetta. Og mýsnar reyndar ekki heldur því þær eiga það til að deyja úr hræðslu gjarnan á miðju stofugólfi. Stundum er þó hægt að koma þeim lifandi út aftur. Allt væri þetta kannski sárasaklaust ef húsfreyjunni væri ekki svona meinilla við mýs. Og í dag þurfti hún heilan klukkutíma til að safna kjarki til þess að koma framliðinni mús úr húsi. En að lokum tókst það með hjálp fægiskóflu og kústs með löngu skafti! Svo nú er bara að bíða og sjá hvort kötturinn bíður annarri mús inn.

kveðja Frúin í Hraunhöfn

No comments:

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

Hraunhafnarsetrið

Hraunhafnarsetrið

aristókratinn

aristókratinn

sá eini sanni

sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum