Monday, August 25, 2008

Litla kennslukonan mætt !

Heil og sæl þá hefur litla kennslukonan hafið störf á ný. Byrjaði 13. ágúst og nú er kennslan hafin. Það sem vekur furðu hennar nú í skólabyrjun að það er óstjórnlega mikið að gera! Kennslukonan hélt nefnilega að hún væri orðin svo sjóuð í þessu að þetta yrði lítið mál. En þá ber svo við að varla er hægt að fá sér kaffisopa í frímínútum og ekki er það gott ástand fyrir litlar kennslukonur. Fögin sem kennslukonan eru ansi mörg og aldurinn er frá 6-16 ára svo um margt þarf að hugsa. Þó hvarflaði að litlu kennslukonunni að hún hefði elst í sumar ( sjálfsagt þroskast líka og breyst eins og nemendurnir) . Og nú sér hún í hillingum þegar hægt verður að setjast við prjóna og lestur ( hvenær sem það nú verður!)
En þrátt fyrir allt er þetta nú allt saman voðalega skemmtilegt , og litla kennslukonan ætlar einnig að horfa á sjónvarpið í kvöld , skipuleggja betur kennslu morgundagsins þar sem bæði íslenska og landafræði á unglingastigi eru á dagskrá ásamt fleiru. Einnig skýst hún í þvottahúsið eldar mat, setur í uppþvottavél, skrifar tölvupóst, talar í síma, les blöðin, klappar kettinum, rétt heilsar upp á bóndann. Leggst í netráp ( bara stutt!) les nokkur orð úr bókinni Maí 68 eftir Einar Má Jónsson, áður en hún svífur ( eða staulast?) inn í draumalandið.

bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn

No comments:

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

Hraunhafnarsetrið

Hraunhafnarsetrið

aristókratinn

aristókratinn

sá eini sanni

sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum