Heil og sæl þá hefur litla kennslukonan hafið störf á ný. Byrjaði 13. ágúst og nú er kennslan hafin. Það sem vekur furðu hennar nú í skólabyrjun að það er óstjórnlega mikið að gera! Kennslukonan hélt nefnilega að hún væri orðin svo sjóuð í þessu að þetta yrði lítið mál. En þá ber svo við að varla er hægt að fá sér kaffisopa í frímínútum og ekki er það gott ástand fyrir litlar kennslukonur. Fögin sem kennslukonan eru ansi mörg og aldurinn er frá 6-16 ára svo um margt þarf að hugsa. Þó hvarflaði að litlu kennslukonunni að hún hefði elst í sumar ( sjálfsagt þroskast líka og breyst eins og nemendurnir) . Og nú sér hún í hillingum þegar hægt verður að setjast við prjóna og lestur ( hvenær sem það nú verður!)
En þrátt fyrir allt er þetta nú allt saman voðalega skemmtilegt , og litla kennslukonan ætlar einnig að horfa á sjónvarpið í kvöld , skipuleggja betur kennslu morgundagsins þar sem bæði íslenska og landafræði á unglingastigi eru á dagskrá ásamt fleiru. Einnig skýst hún í þvottahúsið eldar mat, setur í uppþvottavél, skrifar tölvupóst, talar í síma, les blöðin, klappar kettinum, rétt heilsar upp á bóndann. Leggst í netráp ( bara stutt!) les nokkur orð úr bókinni Maí 68 eftir Einar Má Jónsson, áður en hún svífur ( eða staulast?) inn í draumalandið.
bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn
Monday, August 25, 2008
Monday, August 11, 2008
Borgarferð



Þá er vel heppnuð borgarferð að baki, og nú eru bara 2 dagar þar til sumarleyfi lýkur! Það er ótrúlegt hvað sumarmánuðir líða hraðar en vetrar. Vonandi verður haustið gott því stefnt er á berjatínslu. Litla kennslukonan man ekkert hvað hún ætlaði að kenna í vetur og þarf því að finna skólatöskuna og grafa upp minnismiðana frá því í vor. Hún veit bara að ekki kennir hún stærðfræði.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Tuesday, August 5, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)
útsýnið úr kennslustofunni í dag
útsýni af skólagangi föstud. 4. april
frá Hraunhafnarsetrinu 5. april
Hraunhafnarsetrið
aristókratinn
sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum

