Heil og sæl, hér á Hraunhafnarsetrinu er allt með kyrrum kjörum. Til stóð að Frúin myndi taka rækilega til í 2 herbergjum,mála og gera mjög fínt fyrir gesti og gangandi. Þá brá svo við að yfir hana helltist einhvers konar slen sem sumir kalla leti! Og á ferðum hennar um húsið sá hún að nokkrar bækur voru ólesnar og ekki nóg með það heldur birtist henni glæpasaga á bensínstöðinni sem alveg átti eftir að kynna sér. Þessi lestrarverkefni hafa gengið mjög vel. Í dag fer frúarbíllinn í sína árlegu skoðun í Grundarfirði og síðan ætlar frúin að láta flikka upp á lubbann það gerir hún áHellissandi. Á morgun mun svo litla manneskjan koma og gista eina nótt. Hjá Frúnni er að gera vart við sig svokallaður suðurlandsskjálfti ( lesist: ferð til Rvíkur) og aldrei að vita hvenær spennustigið verður svo hátt að hann brestur á ( hugsanlega fljótlega eftir helgina jafnvel sunnudag).
Helst þyrfti nú tiltekt í salarkynnum frúarinnar að vera að mestu lokið áður.
Bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn
Thursday, June 26, 2008
Monday, June 23, 2008
Wednesday, June 18, 2008
upp upp !
Og hærra fórum við! það hefði mátt vera minni þoka en ég bendi á að lækurinn þarna niðri er stór og mikil á!
Í fjallaþorpunum voru auðvitað kirkjur ( mjög gamlar!) ogkirkjugarðar þar mátti sjá áhrif frá styrjöldunum báðum. þessir ungu menn ( 21-22 ára) fórust í seinna stríðinu. Enn var verið að leggja ný blóm á þessi leiði. Mjög áhrifaríkt að ganga þarna um og greinilegt að þorpið litla hafði misst marga unga menn.kveðja Frúin í Hraunhöfn
Tuesday, June 17, 2008
og meira Frakkland
Útsýni frá skólalóðinni í France , það sást ekki alveg í efstu toppa en þetta voru nú soldið stór fjöll samt
Þetta er nú bara einhvers staðar Frakklandsmegin í ölpunum, það var ansi hátt niður og upp, vegriðin eru hlaðið grjót eins og sést, nóg af því þarna . þetta var ansi tilkomumikið og Ásbyrgi og Almannagjá urðu allt í einu mjög litlir og penir dvergastaðir.Au revoir, Madame Hraunhöfn
Monday, June 16, 2008
viva la france!
Friday, June 13, 2008
og áfram ítalía
horft út um hótelgluggann á hotel Napoleon í Susa
Á þessu húsi hafði verið máluð helgimynd og víða eru líka sólúr og styttur af Maríunum báðum
Í susa dal að mig minnir en við vorum að labba um rómverskar fornminjar, mér fannst nú reyndar eins og ég hefði séð þetta áður ! ha ha .. en því miður var ekki nógu góð fjallasýn en fjöllin enda sem sé ekki þarna við skýiní þessarri ferð náðum við að ferðast í gegnum gróðurbeltin nánast öll ( engin eyðimörk) þ.e. laufskóga, barrskóga og svona næstum því túndrú það var sem sé kalt´fyrir ofan 2500 metrana !
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, June 12, 2008
Ítalía

heil og sæl á ný ! Það væri að æra óstöðugan að sýna allar myndirnar sem ég tók í ferðinni en hér koma þær fyrstu þær eru frá Susa sem er þorp í ölpunum Ítalíumegin. Skólastofa hjá 7-8 ára gömlum nemendum og torgið í Susa. Seinna koma fleiri myndir. Eiginlega eru þær allar af trjám ( ekki hægt að komast hjá því ) þoku, klettum og mjög gömlum húsum.kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, June 2, 2008
Síðasti skóladagurinn í bili
Jæja þá er þetta að verða búið ( altso vinnan í skólanum, lífið heldur áfram!) Eftir hád. fer litla kennslukonan að undirbúa ferðalag út í heim. Hún byrjar á því að fá sér sumardekk undir litla jeppann sinn og athuga hvort evrurnar hafa skilað sér í Kardimommubæinn. Á morgun er svo áætlað að keyra til höfuðstaðarins og gista í námunda við Hallgrím Pétursson. Það verður nú reyndar stutt gist, því svo flýgur konan til Torino. Heimkoma er áætluð 10. júní. Í dag þarf að ganga frá farangri setja blóm í baðker svo bóndinn eigi hægara um vik að muna eftir vökvun! Sem sagt nóg að gera og litla kennslukonuhjartað farið að slá örar af spenningi.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Subscribe to:
Posts (Atom)
útsýnið úr kennslustofunni í dag
útsýni af skólagangi föstud. 4. april
frá Hraunhafnarsetrinu 5. april
Hraunhafnarsetrið
aristókratinn
sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum








