Sunday, May 11, 2008

Krían mætt

Þá er blessuð krían mætt á svæðið kom í hádeginu í gær í fjöruna við Ósakot. Það sást til hennar koma í stórum flokki og með miklu gargi. Ígær var hreinsunarátak fyrir neðan Ósakot að Búðaósi ( áður Hraunhafnarósi) og týnt upp alls kyns plastdrasl, og netadræsur. Þarna voru að verki landeigendur og afkomendur. Frá Kálfárvöllum, Bjarnafossi , Hraunhöfn og sumarbústaðafólk. Einnig voru með í för Týra og Fluga. Við Týra unnum ekki mjög vel saman, ég fann plastbrúsa og hún tók og hljóp með og faldi svo sennilega hef ég alltaf verið að finna sama brúsann. Mjög gott veður var, logn og örlitlir skúrir. Um kvöldið var svo öllum boðið í grill til lögmannsins og fjölskyldu hans í bústaðnum ( vorum rúmlega 20) Magnús Guðni sló að sjálfsögðu í gegn. Og endað var svo á litlum varðeld í fjörunni. Allt fór þetta friðsamlega fram. Í dag er hinsvegar þoka og rigning og nú er þetta orðið nokkuð gott fyrir gróðurinn og má alveg stytta upp. Á föstudaginn fór litla kennslukonan ásamt nemendum og öðrum kennurum í stutt ferðalag, keyrt var að Djúpalónssandi og síðan gengið til Dritvíkur með í för var franskur kennari sem var í heimssókn hjá okkur. Hann kennir í litlum skóla í ölpunum og þangað fer kennslukonan eftir 3 vikur. Ferðin gekk vel enginn hrundi fram af klettum. Þetta hafa því verið miklir útivistardagar. Jæja þá er þessum óskipulagða pistli lokið.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn

No comments:

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

Hraunhafnarsetrið

Hraunhafnarsetrið

aristókratinn

aristókratinn

sá eini sanni

sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum