Thursday, May 29, 2008

skólaferðalög

Í gær fór litla kennslukonan í lítið ferðalag með litlu nemendum sínum. Gengið var niður af fjalli, leiðin var nokkuð brött og mikið um lausa steina , möl, og lækur skoppaði við hlið göngufólks langleiðina.
Í dag á litla kennslukonan erfitt með gang en þarf þó að mæta í skólann sinn og skoða vorsýningar og ganga frá þeim síðan fyrir skólaslit á morgun.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Wednesday, May 28, 2008

evruskortur

Kreppa hvað ! segi ég nú bara! Þar sem kennslukonan er á leið til Ítalíu þar sem besti ís í heimi er búinn til þá ákvað hún að krækja sér í nokkrar evrur til að geta keypt sér ís auðvitað . Hún skellti sér því í Kardimommubæinn ( lesist Ólafsvík) og fór í sinn viðskiptabanka. Þar er henni tjáð að engar evrur séu til nema í 5 evru seðlum. Það þótti ekki nógu gott og skrölti því frúin eftir götunni ( fram hjá dýrindis bakaríi) og í næsta banka. Þar fór allt á s0mu leið. Evrurnar koma víst í bæinn í dag. Allir eru á leið til útlandanna. Svo líklega er ekki kreppa hjá útgerðarmönnum. En það ku vera hægt að redda þessu öllu í Leifsstöð.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Monday, May 26, 2008

Ítalíukvöld

Þá hefur litla kennslukonan hafið störf á ný í litla skólanum sínum eftir vel heppnað helgarfrí. Það ótrúlega gerðist hjá kennslukonunni að henni tókst að ljúka sínum verkefnalista sem var þó ærinn eins og sjá má í færslu frá því fyrir helgi. Einnig tókst henni að bæta á hann örlitlu eins og borðhaldi á Hótel Búðum á sunnudagskvöldið sem auðvitað var bara frábært. Í dag er því litla kennslukonan bara nokkuð bjartsýn á að það takist að ljúka öllum störfum við skólann í vor.

Nú er hugurinn að nálgast Ítalíu og fylgist hún því vel með gengi íslensku krónunnar og evrunnar. Líklega er rétt að festa kaup á nokkrum evrum, svo hægt sé að kaupa sér ís á Ítalíunni.

Kennslukonan er ein heima þessa kvöldstund því bóndinn skrapp á tónleika í Rvík , ætlar að hlusta á Dylan og kaupa dekk undir vörubíla. Hjá kennslukonunni er spaghettiréttur í Ítölskum anda og einnig stundar hún útsaum eins og sannri hefðarkonu sæmir. Sem sagt allt voða rólegt og fínt ( það er líka rólegt þó bóndinn sé heima !).

Kveðja Frúin í Hraunhöfn

Friday, May 23, 2008

helgarfrí

Í dag á litla kennslukonan óvænt frí frá kennslu og skólastörfum. Það kom nefnilega í ljós að hún átti inni einn dag. Nemendur eru líka allir fríi ,vegna dugnaðar í vikunni kláruðust öll verkefni og svo nennir heldur enginn að vera í skóla lengur (en það má helst ekki segja upphátt svo kennslukonan skrifar þetta bara). Þetta frí verður notað til að ganga frá einkunnum 3-10. bekkjar í íslensku, samfélagsfræðum, þvo þvott, skúra gólf ,almenn tiltekt, elda mat, baka jafnvel, passa hunda, (og labbakút jafnvel á laugardagskvöldið), nú svo á að njóta útiveru, lesa, sauma, hafa samband við ættingja og vini. Horfa á imbakassann. Sem sé gott að vera í fríi. Kennslukonan skilur eiginlega ekki hvernig hún hefur tíma til að kennaNú er bara ein vika eftir með nemendum, síðan nokkrir starfsdagar og að lokum ítalíuferð að skoða skóla og skemmta sér. Litla kennslukona er bæði með farseðla og vegabréf í skotstöðu.

kveðja Frúin í Hraunhöfn

Tuesday, May 20, 2008

Batmanfeðgar


Batmanbjóð

Litla kennslukonan brá sér bæjarleið um síðustu helgi. Það þótti henni mjög skemmtilegt enda langt síðan hún hafði farið svona langt út í heim. Hún þurfti þó að hafa með sér skólatösku og tölvuóg útbúa nokkur íslenskupróf, fór létt með það. Það sem kennslukonunni þótti einna skemmtilegast í ferðinni að hún lenti í Batmanbjóði á laugardagskvöldinu og sendir hún hér inn mynd því til sönnunar. Reyndar ferðasti kennslukonan stundum í leigubílum og var ein ferðin sérstaklega minnisverð og verður sagt frá henni jafnvel síðar.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Wednesday, May 14, 2008

svart og hvítt



Það er ýmist í ökkla eða eyra! Á annan í hvítasunnu var hér svarta þoka og varla sá út fyrir tærnar á sér. Myndin af jöklinum er tekin frá Lýsuhólsskóla í dag.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Monday, May 12, 2008

Frá Djúpalónssandi


jökullinn á að vera þarna einhvers staðar !

Sunday, May 11, 2008

Krían mætt

Þá er blessuð krían mætt á svæðið kom í hádeginu í gær í fjöruna við Ósakot. Það sást til hennar koma í stórum flokki og með miklu gargi. Ígær var hreinsunarátak fyrir neðan Ósakot að Búðaósi ( áður Hraunhafnarósi) og týnt upp alls kyns plastdrasl, og netadræsur. Þarna voru að verki landeigendur og afkomendur. Frá Kálfárvöllum, Bjarnafossi , Hraunhöfn og sumarbústaðafólk. Einnig voru með í för Týra og Fluga. Við Týra unnum ekki mjög vel saman, ég fann plastbrúsa og hún tók og hljóp með og faldi svo sennilega hef ég alltaf verið að finna sama brúsann. Mjög gott veður var, logn og örlitlir skúrir. Um kvöldið var svo öllum boðið í grill til lögmannsins og fjölskyldu hans í bústaðnum ( vorum rúmlega 20) Magnús Guðni sló að sjálfsögðu í gegn. Og endað var svo á litlum varðeld í fjörunni. Allt fór þetta friðsamlega fram. Í dag er hinsvegar þoka og rigning og nú er þetta orðið nokkuð gott fyrir gróðurinn og má alveg stytta upp. Á föstudaginn fór litla kennslukonan ásamt nemendum og öðrum kennurum í stutt ferðalag, keyrt var að Djúpalónssandi og síðan gengið til Dritvíkur með í för var franskur kennari sem var í heimssókn hjá okkur. Hann kennir í litlum skóla í ölpunum og þangað fer kennslukonan eftir 3 vikur. Ferðin gekk vel enginn hrundi fram af klettum. Þetta hafa því verið miklir útivistardagar. Jæja þá er þessum óskipulagða pistli lokið.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn

Friday, May 9, 2008

vor í sveitinni


amman og labbakúturinn voru í gönguferð í garðinum. Það sést nú ekki á myndunum að það hafi verið gengið en þeim mun meira var grasafræðin stúderuð !

Saturday, May 3, 2008

undur og stórmerki

Heil og sæl hér í sveit gerðist þau tíðindi nú rétt í þessu að það fór að rigna ! Já segi og skrifa og það er líka logn! Legg ekki meira á ykkur í bili.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

p.s. vona að rigni eldi og brennisteini næstu vikuna ( hélt að ég ætti nú ekki eftir að segja þetta eða öllu heldur skrifa ;-)

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

Hraunhafnarsetrið

Hraunhafnarsetrið

aristókratinn

aristókratinn

sá eini sanni

sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum