Mánudagur á Hraunhafnarsetrinu er svona: staulast fram úr rúmi, kaffikanna sett í gang, staulast að baðherbergi þar sem vatni er gusað yfir andlit og kennslukonuandlit málað ( getur verið töluverð vinna!) bóndinn sest strax með kaffibollann ómálaður. Í morgun vissi kennslukonan að eitthvað var öðruvísi við daginn í dag en mundi bara ekki hvað það var. Hún ákvað samt að skella sér í litla skólann sinn. Hún keyrði í rólegheitum alein á veginum, fréttir rásar 1 streymdu inn um annað eyrað og mjög fljótleg út um hitt ( stundum áhyggjuefni hvursu hratt gegnumstreymið er í gegnum höfuð kennslukonunnar) Eitthvað var að brjótast um í litla höfðinu, hvað var þetta með daginn í dag?
í skólanum starfar stuðningsfulltrúi ( hugsaður fyrir nemendu en nýtist einnig kennurum) sem gat upplýst fyrir kennslukonunni að í dag væri foreldradagur. Foreldradagar fara þannig fram að foreldrar koma í skólann og dást að verkum barna sinna, tala við kennara um námið ( þó ekki alltaf) síðan er teflt, tekið í spil, og drukkið kaffi, allt mjög rólegt og gott. Og þannig var það einnig í dag. Í lok dagsins var kennslukonan nokkuð ánægð með sig og ætlar að hafa það náðugt í kvöld, sitja við útsaum og horfa á amerískan glæpaþátt.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, April 7, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
útsýnið úr kennslustofunni í dag
útsýni af skólagangi föstud. 4. april
frá Hraunhafnarsetrinu 5. april
Hraunhafnarsetrið
aristókratinn
sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum
1 comment:
Sigh! Oh for teaching days like that! ;-) Maybe I should try this teaching face you paint :-O :-)
Post a Comment