Tuesday, April 29, 2008

vindbarin skreið!

jæja nú er þetta orðið gott ! hér er búið að vera ansi kröftugt rok og þurrkur. íbúar í Staðarsveit fara að líta út eins og skreið vel þurrkuð ! Vötnin rjúka í allar áttir, skítakuldi og snjóar í efstu fjallatoppum. Líklega á Pollíönnuleikurinn vel við núna , við höfum það fínt engin hlýnun jarðar hér og allir eiga hús til að vera í meðan rokið gengur yfir ( fýkur auðvitað!) Og svo snjóar ekki mikið líkt og á norðurlandinu.
Það er sem sé gluggaveður og varla það því ég verð hálffúl þegar ég lít út og sé að moldin rýkur ( og ekki í logninu) og Vindgnauð er sjálfsagt rómantískt í 19. aldar róman en ekki hér á Hraunhafnarsetrinu.
Nú fýkur þessi pistill út í netheima, Guð má vita hvar hann lendir.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn

p.s að öðru leyti eru allir hressir hér fyrir utan hósta,

Thursday, April 24, 2008

sumarið framundan? rigning?

Það fraus ekki saman í nótt, þ.e. sumar og vetur. Spurningin snýst nú um hvort eigi að fá sér smartan regngalla og flott gúmmistígvél ?Frúin á fína regnhlíf.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn

nóg að gera í kubbunum !




Gleðilegt sumar ! já það virðist vera alltaf jafnskemmtilegt að kubba þó að þurfi stundum að hafa fyrir því að leita að þeim rétta í kassanum en þetta hafðist allt saman.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Wednesday, April 23, 2008

Síðasti vetrardagur

jæja þá er litla kennslukonan búin að fara alla leið að Reykhólum á Barðaströnd með hóp nemenda frá 3-7. bekk. Það gekk allt vel enda kom kennslukonan varla upp orði frekar en söngkonan í Kardimommubænum , gat því lítið skammast. Það verður að segjast að kvef og hæsi er ekki gott í kennarastarfinu en nemendur virðast vera þokkalega ánægðir með það ástand hugsið ykkur ! En heim var komið rúmlega fimm ( það tekur tvo og hálfan tíma að keyra þangað) og það verður að segjast að litla kennslukonan var ákaflega glöð þegar hún komst heim til sín. Henni bauðst nú reyndar að fara á árshátíð með 5- 7 bekk úr öllum Snæfellsbæ í félagasheimilinu Klifi í kvöld en húsvörður skólans fórnaði sér í það. Svo nú verður bara þögnin ein sem ríkir á Hraunhafnarsetrinu því bóndinn á erfitt með mál líka sökum kvefs. En samt sem áður er stefnt á sumarbústaðaferð á Freyjugötu um helgina enda búið að boða til húsfundar í kjallaranum kl 11 f.h. á laugardag.
En nú er bara að vona að frjósi saman vetur og sumar í nótt.
Gleðilegt sumar
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Monday, April 21, 2008

kóngur í ríki sínu

rölt um landareignina, með þjóninn allt virtist í góðu lagi hjá hjúunum. Vinnkonan tók myndir , karlinn keyrði og kóngurinn hafði það fínt á meðan!

útivist í sveitinni

ævintýri á gönguför, engin kerra til í sveitinni en það var bara allt í lagi. Þetta þótti mjög skemmtilegt og mikið tíst og hlegið.

Thursday, April 17, 2008

Þetta fína tré er því miður ekki á skólalóð Lýsuhólsskóla heldur í þorpinu Chambon sur Cisse, á skólalóðinni þar. Þennan dag sem við vorum þar gerði hellidembur og krakkarnir leituðu skjóls undir trénu.

Frönsk sveitakrá

Þetta er frá gistihúsinu í þorpinu Molineuf, og eigandinn á bak við borðið og ég að panta mér cafe au lait

Wednesday, April 16, 2008

kennslukonustörf

Jæja þá hefur kennslukonan stundað sín störf í þrjá daga af þó nokkrum krafti. Nemendur á miðstigi fengu það verkefni að velja sér kjörbók eftir Íslenskan höfund ( frúin orðin leið á Harry Potter sögum ) og skrifa um þetta stutta ritgerð. Nákvæmar leiðbeiningar fylgdu þessu að sjálfsögu skriflega, því í hraða nútímans man enginn neitt ef ekki er skrifað niður. Nem. 5-6 bekkjar fengu einfaldari útfærslu en 7-8 bekkur. En sem sagt skiladagur er 6. maí. Það kom í ljós að enginn les sér lengur til ánægju og það skilur litla kennslukonan ALLS EKKI ! Sem sagt verið að pínu litlu sætu sveitabörnin æ æ ( ha ha ha ..) Nú svo var búið til fínt íslenskuverkefni fyrir 3-4 bekk en kennslukonan sér að það verður sull og vinna svo hún er að safna kjarki til að geta lagt það fyrir , hún fann nefnilega upp málfræðiverkefni sem verður útfært í klippimyndum og málningarsulli ásamt rituðu máli já já andinn kom yfir hana ( og fór sem betur fer ekki fyrr en búið var að útfæra verkefnið!)
Og nú er bara að klára vikuna , fara í hundana um helgina en stefnan er síðan sett á höfuðborgarsvæðið í sumarbústað á Freyjugötu um þar næstu helgi.
Mikið verður nú gott að fá sumarfrí ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Sunday, April 13, 2008

vor

er ekki komið vor núna??

Rólegheit

Jæja það er afmælisdagurinn að kveldi kominn, og allt að verða rólegt á Snæfellsnesinu. Litla kennslukonan ætlar að horfa á sjónvarpið í kvöld og liggja í leti. Á myndinni er afmælisbarnið ásamt foreldrum sínum.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Stóri frændinn kom í sveitina


Steinar stóri frændi kom í sveitina ásamt föður sínum.

afmælisbarn dagsins


Afmælisbarn dagsins . Guttinn 1 árs í dag. Mikil veisla og hátíðarhöld fóru fram í Ólafsvíkurborg í tilefni dagsins.

Thursday, April 10, 2008

Leonardo Da Vinci


Og í Frakklandi heimsóttum við karlinn Da Vinci og þarna svaf hann karlinn síðustu æviárin , mig minnir að bærinn heitir Amboise, leiðréttið mig ef rangt er.
Au Revoir madame Hildur

loksins gat ég þetta

þarna dvaldi ég í fyrrasumar lítið þorp í mið France.

tíðindalaust af vesturvígstöðvunum

Jæja þá er kennslukonan farin að sjá fyrir endann á vinnuvikunni . Í dag átti að vera stutti dagurinn í kennslu en vegna veikinda kennara og fundarstarfa hjá öðrum þá var aukakennsla. hjá litlu kennslukonunni. Yfirleitt finnst henni það bara fínt en þar sem hún fór tímabundið í hundana ( sennilega til morguns) þá truflaði þetta verulega skipulag dagsins. En sem sagt nú er bara að klára morgundaginn , það er annars ósköp rólegt hér ( nema þá helst í veðrinu vetur í morgun en vor eftir hád). Bóndinn stundar sína vinnu á Malarrifi og hans næsti frídagur er líklega um verslunarmannahelgina og síðan á Þorláksmessu!
Stórafmælið er svo á sunnudaginn þegar erfðaprins Ólafsvíkur verður 1 árs og miðað við umfang veislunnar og skipulag þá trúi ég að forsetahjónin verði á svæðinu ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Tuesday, April 8, 2008

þriðjudagsmorgnar

Þriðjudagsmorgnar eru eins og mánudagsmorgnar, en í morgun vissi kennslukonan nokkurn veginn hvað stæði til í dag. Og dagurinn gekk bara þokkalega, nemendur voru að vísu ekki alveg jafnánægðir með speki dagsins, en létu sig hafa það. Það er nefnilega erfitt að lauma sér úr sveitaskólanum og skrópa, það er svo langt heim ha ha...
Í kvöld getur kennslukonan litla valið um að fara á tvo fundi jú eða mæta á hvorugan og sofa yfir sjónvarpi. Hún hefur ákveðið að mæta á fund í litla skólanum sínum þar sem verður fræðsla um átröskun, vaxandi vandamál í vestrænum samfélögum. Fundur í Ólafsvík hjá Soroptimistum verður aðvera án hennar í þetta sinn.
Vonandi verður nú fræðslufundurinn búinn á skikkanlegum tíma því það er nefnilega fínn breskur krimmi í sjónvarpinu eftir tíu-fréttirnar;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Monday, April 7, 2008

mánudagar

Mánudagur á Hraunhafnarsetrinu er svona: staulast fram úr rúmi, kaffikanna sett í gang, staulast að baðherbergi þar sem vatni er gusað yfir andlit og kennslukonuandlit málað ( getur verið töluverð vinna!) bóndinn sest strax með kaffibollann ómálaður. Í morgun vissi kennslukonan að eitthvað var öðruvísi við daginn í dag en mundi bara ekki hvað það var. Hún ákvað samt að skella sér í litla skólann sinn. Hún keyrði í rólegheitum alein á veginum, fréttir rásar 1 streymdu inn um annað eyrað og mjög fljótleg út um hitt ( stundum áhyggjuefni hvursu hratt gegnumstreymið er í gegnum höfuð kennslukonunnar) Eitthvað var að brjótast um í litla höfðinu, hvað var þetta með daginn í dag?
í skólanum starfar stuðningsfulltrúi ( hugsaður fyrir nemendu en nýtist einnig kennurum) sem gat upplýst fyrir kennslukonunni að í dag væri foreldradagur. Foreldradagar fara þannig fram að foreldrar koma í skólann og dást að verkum barna sinna, tala við kennara um námið ( þó ekki alltaf) síðan er teflt, tekið í spil, og drukkið kaffi, allt mjög rólegt og gott. Og þannig var það einnig í dag. Í lok dagsins var kennslukonan nokkuð ánægð með sig og ætlar að hafa það náðugt í kvöld, sitja við útsaum og horfa á amerískan glæpaþátt.
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Saturday, April 5, 2008

stutt ferðasaga

þessa dagana takmarkast sjóndeildarhringur minn af svæðinu frá Hraunhafnarsetrinu og að Lýsuhólsskóla ( um helgar leyfi ég mér að brjóta þetta upp og skjótast í búð til Ólafsvíkur.) Í gær var ég einu sinni sem oftar á leið til vinnu og ákvað að fara á mínum frúarbíl. Gott veður var og pínu vorstemning á hlaðinu í Hraunhöfn, kennslukonan ákvað því að skella sér í pils og vera pínu fín þennan síðasta dag vikunnar í kennslu. Nú svo leggur hún af stað á sínum frúarbíl er alein á veginum, hlustar á útvarpsfréttirnar þar sem fjallað var um umferðarmenningu höfuðborgarinnar , þar var allt meira og minna fast og enginn komst neitt. Um það bil sem kennslukonan er að fara hugsa heimspekilega um umferð og heimsvandamálin þarna í lognblíðunni í sveitinni sinni. Þá skyndilega brestur á með vindhviðu og bíll kennslukonunnar hendist til , hjartað sló örlítið hraðar, og hún varð undrandi á þessu . Svo brast lognið á aftur og kennslukonan gat haldið áfram ein á veginum í litla skólann sinn þar sem litlu nemendurnir biðu í ofvæni eftir speki dagsins.
Það hefði nú verið þokkalegt að fjúka út af þarna í logninu í Staðarsveit hugsaði hún, hefði einhver trúað henni?
kveðja Frúin í Hraunhöfn

Thursday, April 3, 2008

vorið í húsasmiðjunni

Byko, Húsasmiðjan og Rúmfatalagerinn segja mér að núna sé vorið komið og því til staðfestingar fæ ég senda hina ýmsu bæklinga heim. Hér er norðan skítakuldi og snjókorn á sveimi, ( altso úti !) Kannski ég skelli mér bara í Húsasmiðjuna.
kveðja Frúin í Hraunöfn

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýnið úr kennslustofunni í dag

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

útsýni af skólagangi föstud. 4. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

frá Hraunhafnarsetrinu 5. april

Hraunhafnarsetrið

Hraunhafnarsetrið

aristókratinn

aristókratinn

sá eini sanni

sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum