Nú er ég að komast í vorstuð ( já það er of snemmt ég veit það !) í morgun þegar ég gekk niður á þjóðveg í veg fyrir skólabílinn var fjöldi spora eftir ref eða refi, í hádeginu flaug svo örn yfir skólasvæðinu ( náðist ekki á mynd), sólin fór að skína og snjórinn að bráðna pínu. Það var samt ekkert vorlegt að horfa út um gluggann á kennslustofunni eins og sjá má hér á myndinni. En það er bjart fram eftir öllu og aldrei þessu vant alveg logn!
Hér á bæ er allt með hefðbundnu sniði, ég hef skrölt fram í þvottahús og sett þvottavél í gang og skellti í eina sjávarréttapitsu sem verður kvölmaturinn hér ( þ.e ef Eyjólfur skilar sér úr vinnunni á skikkanlegum tíma!) Það er nefnilega að koma sumarvinnutíminn hans sem þýðir að farið er af stað um klukkan hálfátta á morgnana og komið heim líklega fyrir miðnætti ójá. Nemendur komu þokkalega stemdir undan páskafríinu og öll hafa úðað í sig töluverði magni af páskaeggjum.
Kveðja frá frúnni í Hraunhöfn ( virðulegt ekki satt;-) )
Wednesday, March 26, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
útsýnið úr kennslustofunni í dag
útsýni af skólagangi föstud. 4. april
frá Hraunhafnarsetrinu 5. april
Hraunhafnarsetrið
aristókratinn
sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum
2 comments:
ég meina kvöldmaturinn ´vonandi verður þetta ekki kvöl-matur !
Vá ég er bara svo hissa hvað þú ert orðin mikill tölvunörnd og það á undan Sindra!!!
Post a Comment