Nokkrar fyrirsagnir úr netmogga hafa hrifið mig þessa dagana t.d. " ráðherrarnir koma af fjöllum " minnir á sagnir um jólasveinana og kannski ekki skrítið ? Önnur var um daginn "druslurnar úr landi" þá hélt ég að ég væri að lesa um "auðmenn " þjóðarinnar og bankastjóra en það var nú smá misskilningur í mér. Og síðan er það fyrirsögnin "þjófur iðrast" og þá var ekki verið að tala um útrásarvíkinginn. Svona er nú auðvelt að misskilja hlutina ef maður les ekki alla fréttina.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, November 10, 2008
Wednesday, November 5, 2008
köttur og mús
hér í sveit hefur það tíðkast að halda ketti , þeir eiga síðan að sjá um að mýs haldi sig úti. Á Hraunhafnarsetrinu er þetta ekki svona. Að vísu er hér háaldraður og virðulegur köttur, svartur og glansandi. Hann er mikill músavinur. Því er það þannig að þegar hausta tekur þá bíður hann þeim inn sleppir þeim lausum svo þær geti virt fyrir sér þessi miklu húsakynni. Sem þær svo gera. Kötturinn fær sér kattarmat og mjólk og leggur sig fram á næsta kvöld, þá er kominn tími til að bjóða næstu mús. Húsfreyjan á setrinu er ekki jafnánægð með þetta. Og mýsnar reyndar ekki heldur því þær eiga það til að deyja úr hræðslu gjarnan á miðju stofugólfi. Stundum er þó hægt að koma þeim lifandi út aftur. Allt væri þetta kannski sárasaklaust ef húsfreyjunni væri ekki svona meinilla við mýs. Og í dag þurfti hún heilan klukkutíma til að safna kjarki til þess að koma framliðinni mús úr húsi. En að lokum tókst það með hjálp fægiskóflu og kústs með löngu skafti! Svo nú er bara að bíða og sjá hvort kötturinn bíður annarri mús inn.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, November 3, 2008
Vetrarfrí
Heil og sæl , litla kennslukonan er ekki í miklu bloggstuði þessa dagana. Hún er orðin þreytt á kreppu og peningatali. Kennslukonan fór í vetrarfrí á fimmtudaginn og það að klárast í kvöld. Það undarlega er að þegar kennslukvindan fór í frí þá tók húsmóðirin völdin og skipulagsstjórinn fór á fullt! Ekkert frí þar. Farið var með tölvu frúarinnar í hreinsun og stækkun ( ég kann ekki að útskýra þetta nánar) Farið í heimssóknir og að lokum í Bónus , nema hvað . Helgin var svo helguð barnabarni og fjölskyldu frúarinnar og tiltektir. Aðeins gripið í prjóna og lestur. En nú þarf að glugga í skólatöskuna og skipulag morgundagsins. . Mikið væri nú gott að hafa aðeins lengra frí ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, October 27, 2008
Himintunglin
Himintunglin blessa þig í dag með því að draga úr athyglissýki þinni. Notaðu tækifærið og vertu ein í friði með góðri bók - og nokkrum súkkulaðibitum.
Hvað er hægt annað en að fara eftir þessu á þessum síðustu og verstu ?
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Hvað er hægt annað en að fara eftir þessu á þessum síðustu og verstu ?
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, October 6, 2008
það er vont en það venst
Nú er það pollíönnuleikurinn ,sem allir eru að fara í.
Mér hafa flogið í hug ljóðlínurnar: "það er vont en það venst svo versnar það stöðugt svo verður það stöðugt verra en orð fá lýst ..." osfrv. Man nú ekki alveg nógu vel framhaldið en þetta lýsir kannski helgarumræðunni ? veit það ekki. En sem sé áfram Pollíanna!!
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Mér hafa flogið í hug ljóðlínurnar: "það er vont en það venst svo versnar það stöðugt svo verður það stöðugt verra en orð fá lýst ..." osfrv. Man nú ekki alveg nógu vel framhaldið en þetta lýsir kannski helgarumræðunni ? veit það ekki. En sem sé áfram Pollíanna!!
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Sunday, September 28, 2008
Friday, September 26, 2008
Réttar tímasetningar og réttir
Ljón: Það er ofmetið að vita hvert maður stefnir. Þú veist hvar þú ert - það skiptir mestu máli. Þú ert aldrei týndur. Alltaf á réttum stað á réttum tíma. Alveg satt.
Það var nefnilega það.
Hér í sveit er réttað þessa helgina , og að venju er skítaveður, rok og rigning og snjóar í fjöll. En sjálfsagt verður líf og fjör. Litla kennslukonan ætlar að útbúa sig vel og taka litla vinnumanninn með sér.
Á Hraunhafnarsetrinu verður gestkvæmt og sofið í hverju skoti, elduð kjötsúpa og drukkinn mjöður með. Húsbóndinn verður þó fjarri góðu gamni þar eð hann verður staddur í Grafarnesi í vegagerð. Fær þó mat á kvöldin en sleppur við að hlaupa á eftir sauðunum.
Sem sagt líf og fjör í sveitinni
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Það var nefnilega það.
Hér í sveit er réttað þessa helgina , og að venju er skítaveður, rok og rigning og snjóar í fjöll. En sjálfsagt verður líf og fjör. Litla kennslukonan ætlar að útbúa sig vel og taka litla vinnumanninn með sér.
Á Hraunhafnarsetrinu verður gestkvæmt og sofið í hverju skoti, elduð kjötsúpa og drukkinn mjöður með. Húsbóndinn verður þó fjarri góðu gamni þar eð hann verður staddur í Grafarnesi í vegagerð. Fær þó mat á kvöldin en sleppur við að hlaupa á eftir sauðunum.
Sem sagt líf og fjör í sveitinni
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, September 1, 2008
berjatíminn
Nú eru dýrðartímar á Hraunhafnarsetrinu. Á landareigninni spretta bláber og auðvitað krækiber líka. Til stóð ( og stendur jafnvel enn !) að fara í sultugerð . Frúin rölti hér upp í fjallshlíðina og lagðist fyrir öðru hverju í bláberjalyngi. Afraksturinn var rúmlega kíló af bláberjum með aðalbláberjum í bland. Keyptur var rjómi og hann þeyttur svo sultugerðin mun bíða betri tíma. Það er alltaf hægt að tína meira seinna.
Bláber með þeyttum rjóma er með því betra sem hægt er að fá.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Bláber með þeyttum rjóma er með því betra sem hægt er að fá.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, August 25, 2008
Litla kennslukonan mætt !
Heil og sæl þá hefur litla kennslukonan hafið störf á ný. Byrjaði 13. ágúst og nú er kennslan hafin. Það sem vekur furðu hennar nú í skólabyrjun að það er óstjórnlega mikið að gera! Kennslukonan hélt nefnilega að hún væri orðin svo sjóuð í þessu að þetta yrði lítið mál. En þá ber svo við að varla er hægt að fá sér kaffisopa í frímínútum og ekki er það gott ástand fyrir litlar kennslukonur. Fögin sem kennslukonan eru ansi mörg og aldurinn er frá 6-16 ára svo um margt þarf að hugsa. Þó hvarflaði að litlu kennslukonunni að hún hefði elst í sumar ( sjálfsagt þroskast líka og breyst eins og nemendurnir) . Og nú sér hún í hillingum þegar hægt verður að setjast við prjóna og lestur ( hvenær sem það nú verður!)
En þrátt fyrir allt er þetta nú allt saman voðalega skemmtilegt , og litla kennslukonan ætlar einnig að horfa á sjónvarpið í kvöld , skipuleggja betur kennslu morgundagsins þar sem bæði íslenska og landafræði á unglingastigi eru á dagskrá ásamt fleiru. Einnig skýst hún í þvottahúsið eldar mat, setur í uppþvottavél, skrifar tölvupóst, talar í síma, les blöðin, klappar kettinum, rétt heilsar upp á bóndann. Leggst í netráp ( bara stutt!) les nokkur orð úr bókinni Maí 68 eftir Einar Má Jónsson, áður en hún svífur ( eða staulast?) inn í draumalandið.
bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn
En þrátt fyrir allt er þetta nú allt saman voðalega skemmtilegt , og litla kennslukonan ætlar einnig að horfa á sjónvarpið í kvöld , skipuleggja betur kennslu morgundagsins þar sem bæði íslenska og landafræði á unglingastigi eru á dagskrá ásamt fleiru. Einnig skýst hún í þvottahúsið eldar mat, setur í uppþvottavél, skrifar tölvupóst, talar í síma, les blöðin, klappar kettinum, rétt heilsar upp á bóndann. Leggst í netráp ( bara stutt!) les nokkur orð úr bókinni Maí 68 eftir Einar Má Jónsson, áður en hún svífur ( eða staulast?) inn í draumalandið.
bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn
Monday, August 11, 2008
Borgarferð



Þá er vel heppnuð borgarferð að baki, og nú eru bara 2 dagar þar til sumarleyfi lýkur! Það er ótrúlegt hvað sumarmánuðir líða hraðar en vetrar. Vonandi verður haustið gott því stefnt er á berjatínslu. Litla kennslukonan man ekkert hvað hún ætlaði að kenna í vetur og þarf því að finna skólatöskuna og grafa upp minnismiðana frá því í vor. Hún veit bara að ekki kennir hún stærðfræði.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Tuesday, August 5, 2008
Wednesday, July 30, 2008
Friday, July 25, 2008
nálapúði
Stakk mig á rósarunna í dag , og í gær var ég stungina af flugu frekar illa. Það er kannski viðeigandi fyrir þann sem er að reyna að sauma út að vera eins og nálapúði ! Því miður er flísin eftir rósina enn djúpt í fingrinum og verð ég að bíða eftir því að hún skili sér með viðeigandi hætti.,
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, July 24, 2008
Enn um Ólympíuleika
Frúin í Hraunhöfn hefur tekið eftir því að nú eru margir óánægðir með forsetahjón, ríkisstjórn, ólympíuleika. Allt er þetta nú samt val þjóðarinnar. Hún kaus forsetann og enginn býður sig fram á móti honum, þjóðin kaus ríkisstjórnina og þjóðin er mjög ánægð með að íþróttamenn komist á ólympíuleikana í Kína. En má enginn fara og horfa á þá keppa? Er þetta ekki hræsni? Mannréttindi hafa verið brotin í Kína öldum saman. Hvaða læti eru þetta núna? Og við erum með sendiráð þar, viðskiptasambönd osfrv. Eigum við bara ekki að slíta þessu öllu? En auðvitað eigum við að berjast gegn mannréttindabrotum líkt og er í Kína og Frúin hefði viljað að Íslendingar hefðu algerlega sniðgengið þessa leika. En sjálfsagt er hægt að mynda ný viðskiptasambönd og græða pening þá róast allir eða hvað?
Kveðja frá Hraunhafnarsetrinu
Kveðja frá Hraunhafnarsetrinu
Monday, July 21, 2008
Stjörnurnar tala ;-)
Eitthvað sem þú eignaðist nýlega mun veita þér ómælda gleði. Þú elskar að baða þetta nýja "leikfang" í ást og athygli. Það er hverrar krónu virði.
Svona er spá dagsins , Frúin í Hraunhöfn fékk nýja uppþvottavél í gær, já stjörnurnar vita sínu viti.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Svona er spá dagsins , Frúin í Hraunhöfn fékk nýja uppþvottavél í gær, já stjörnurnar vita sínu viti.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, July 17, 2008
Frelsið
Ljón: Hvert augnablik dagsins þarf ekki að vera skipulagt. Frelsaðu andann með því að ákveða að gera alls ekki neitt. Hlutir í réttri röð gefa persónulegt rými.
Ég vissi það ! og held áfram á þessarri braut ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Ég vissi það ! og held áfram á þessarri braut ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, July 14, 2008
Frelsi, jafnrétti og bræðralag!
Í dag er Bastilludaguinn ( eins og allir vita) og kjörorðin góðu frelsi, jafnrétti og bræðralag eiga jafnvel við og árið 1789. Enn er verið að berjast fyrir þessu víðs vegar um heiminn , hérna á Fróni líka.
Hundadagar eru líka að byrja en þeim lauk tímabundið í dag hér á Hraunhafnarsetrinu. Nú er það sem sé kötturinn sem ræður ríkjum og því miður fyrir fuglavini þá féll enn enn fuglinn í valinn í dag. Þrátt fyrir að kötturinn sé orðinn háaldraður og latur þá getur hann enn veitt sér til matar. Hann hafði líka möguleika á rjóma og fínum kattarmat í skal en nýr þrastarungi ku vera gómsætur.
Frúin í Hraunhöfn er ekki jafnhrifin af þessum veiðiskap, spurning hvort kvótinn sé ekki búinn þarna!
En Frelsi, jafnrétti og bræðaralag eru kjörorð dagsins í dag. Vonandi verða þessi baráttuorð einhvern tímann að veruleika.
Au revoir!
Frúin í Hraunhöfn
Hundadagar eru líka að byrja en þeim lauk tímabundið í dag hér á Hraunhafnarsetrinu. Nú er það sem sé kötturinn sem ræður ríkjum og því miður fyrir fuglavini þá féll enn enn fuglinn í valinn í dag. Þrátt fyrir að kötturinn sé orðinn háaldraður og latur þá getur hann enn veitt sér til matar. Hann hafði líka möguleika á rjóma og fínum kattarmat í skal en nýr þrastarungi ku vera gómsætur.
Frúin í Hraunhöfn er ekki jafnhrifin af þessum veiðiskap, spurning hvort kvótinn sé ekki búinn þarna!
En Frelsi, jafnrétti og bræðaralag eru kjörorð dagsins í dag. Vonandi verða þessi baráttuorð einhvern tímann að veruleika.
Au revoir!
Frúin í Hraunhöfn
Saturday, July 12, 2008
loksins!
Loksins kom almennilegt veður! Þoka, rigning, hiti og lítill vindur. Gróðurinn að lifna við , sannkallað lestrar og prjónaveður ( það er nú reyndar alltaf þannig)
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, July 10, 2008
stjörnuspá dagsins
Ljón: Það er auðvelt að fá letikast á verstu mögulegu stundu. Náðu sjálfstjórn. Hoppaðu upp og niður. Öskraðu. Sýndu eldmóð, jafnvel þótt hann sé uppgerð í upphafi.
það var nefnilega það, og ég sem sit í rólegheitum og drekk kaffi!
kveðja Frúin í Hraunhöfn
það var nefnilega það, og ég sem sit í rólegheitum og drekk kaffi!
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Wednesday, July 9, 2008
Hugs hugs !
Frúin í Hraunhöfn er bara ánægð með að sólin skín ekki í dag , hún ætlar nefnilega að skjótast út og suður að erindast en þó mest í erindisleysu sem má auðvitað ekki núna á síðustu og verstu tímum bensínverðs og kreppu! Ég velti fyrir mér hvernig kreppa þetta sé, hef nefnilega ekki upplifað kreppu áður en miðað við lýsingar frá fyrri hluta síðustu aldar þá hef ég ekki miklar áhyggjur. Ég hef húsaskjól og mat og ættingjar og vinir einnig. Ég gæti leitað til þeirra ef þetta yrði mjög slæmt hér á Snæfellsnesinu. Ég er líka að velta því fyrir mér hvernig stóð á því að ólympíuleikarnir eru í Kína. Þar eru mannréttindi brotin eins og ekkert sé og einnig er mengun þar stórt vandamál. Já Frúin í Hraunhöfn er þungt hugsi í dag ;-)
kveðja frá Hraunhafnarsetrinu
kveðja frá Hraunhafnarsetrinu
Monday, July 7, 2008
letilíf
Heil og sæl, hér hefur verið sannkallað miðjarðarhafsveður! Sól og alltof heitt á sunnudag. Á laugardaginn var þoka og skýjað og mjög fínt veður hægt að skúra og taka til innanhúss ógurlega skemmtilegt. í gær var dvalið úti og snæddur ís. Og í forsælunni mældist hér 22 gráður um miðjan dag var sennilega heitara fyrr um daginn. Og við sátum í skugga trjánna allan daginn ( hefði maður trúað því að það væri nauðsynlegt í Staðarsveitinni!).
Hundar eru latir en nokkuð kátir, kötturinn er í stofufangelsi en hann sefur hvort eð er allan daginn orðinn háaldraður. Jæja ég er farin út aftur með kaffi :-)
Bestu kveðjur frá Hraunhafnarsetrinu
Hundar eru latir en nokkuð kátir, kötturinn er í stofufangelsi en hann sefur hvort eð er allan daginn orðinn háaldraður. Jæja ég er farin út aftur með kaffi :-)
Bestu kveðjur frá Hraunhafnarsetrinu
Friday, July 4, 2008
sveitasælan
Þá er Frúin komin heim á setrið. Og það er ekki sökum að spyrja hún fór beint í hundana! Já sumum er bara ekki viðbjargandi. Eftir góða ferð til höfuðborgarinnar stóð til að hella sér í framkvæmdir. Þá vildi svo til að Fruarinnar beið nýjasta bók Lisu Marklund og það er óhætt að segja að hún lofar góðu ;-). Kennslukonan lokaði öllum þeim sölum sem tiltektar þurfa við og nú sér enginn draslið lengur!
Það er sól og sumar í sveitinni ( meðan þetta er skrifað!) og Frúin er mjög ánægð með það.
Kveðja frá Hraunhafnarsetrinu
Það er sól og sumar í sveitinni ( meðan þetta er skrifað!) og Frúin er mjög ánægð með það.
Kveðja frá Hraunhafnarsetrinu
Thursday, June 26, 2008
framkvæmdir /framkvæmdaleysi!
Heil og sæl, hér á Hraunhafnarsetrinu er allt með kyrrum kjörum. Til stóð að Frúin myndi taka rækilega til í 2 herbergjum,mála og gera mjög fínt fyrir gesti og gangandi. Þá brá svo við að yfir hana helltist einhvers konar slen sem sumir kalla leti! Og á ferðum hennar um húsið sá hún að nokkrar bækur voru ólesnar og ekki nóg með það heldur birtist henni glæpasaga á bensínstöðinni sem alveg átti eftir að kynna sér. Þessi lestrarverkefni hafa gengið mjög vel. Í dag fer frúarbíllinn í sína árlegu skoðun í Grundarfirði og síðan ætlar frúin að láta flikka upp á lubbann það gerir hún áHellissandi. Á morgun mun svo litla manneskjan koma og gista eina nótt. Hjá Frúnni er að gera vart við sig svokallaður suðurlandsskjálfti ( lesist: ferð til Rvíkur) og aldrei að vita hvenær spennustigið verður svo hátt að hann brestur á ( hugsanlega fljótlega eftir helgina jafnvel sunnudag).
Helst þyrfti nú tiltekt í salarkynnum frúarinnar að vera að mestu lokið áður.
Bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn
Helst þyrfti nú tiltekt í salarkynnum frúarinnar að vera að mestu lokið áður.
Bestu kveðjur Frúin í Hraunhöfn
Monday, June 23, 2008
Wednesday, June 18, 2008
upp upp !
Og hærra fórum við! það hefði mátt vera minni þoka en ég bendi á að lækurinn þarna niðri er stór og mikil á!
Í fjallaþorpunum voru auðvitað kirkjur ( mjög gamlar!) ogkirkjugarðar þar mátti sjá áhrif frá styrjöldunum báðum. þessir ungu menn ( 21-22 ára) fórust í seinna stríðinu. Enn var verið að leggja ný blóm á þessi leiði. Mjög áhrifaríkt að ganga þarna um og greinilegt að þorpið litla hafði misst marga unga menn.kveðja Frúin í Hraunhöfn
Tuesday, June 17, 2008
og meira Frakkland
Útsýni frá skólalóðinni í France , það sást ekki alveg í efstu toppa en þetta voru nú soldið stór fjöll samt
Þetta er nú bara einhvers staðar Frakklandsmegin í ölpunum, það var ansi hátt niður og upp, vegriðin eru hlaðið grjót eins og sést, nóg af því þarna . þetta var ansi tilkomumikið og Ásbyrgi og Almannagjá urðu allt í einu mjög litlir og penir dvergastaðir.Au revoir, Madame Hraunhöfn
Monday, June 16, 2008
viva la france!
Friday, June 13, 2008
og áfram ítalía
horft út um hótelgluggann á hotel Napoleon í Susa
Á þessu húsi hafði verið máluð helgimynd og víða eru líka sólúr og styttur af Maríunum báðum
Í susa dal að mig minnir en við vorum að labba um rómverskar fornminjar, mér fannst nú reyndar eins og ég hefði séð þetta áður ! ha ha .. en því miður var ekki nógu góð fjallasýn en fjöllin enda sem sé ekki þarna við skýiní þessarri ferð náðum við að ferðast í gegnum gróðurbeltin nánast öll ( engin eyðimörk) þ.e. laufskóga, barrskóga og svona næstum því túndrú það var sem sé kalt´fyrir ofan 2500 metrana !
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, June 12, 2008
Ítalía

heil og sæl á ný ! Það væri að æra óstöðugan að sýna allar myndirnar sem ég tók í ferðinni en hér koma þær fyrstu þær eru frá Susa sem er þorp í ölpunum Ítalíumegin. Skólastofa hjá 7-8 ára gömlum nemendum og torgið í Susa. Seinna koma fleiri myndir. Eiginlega eru þær allar af trjám ( ekki hægt að komast hjá því ) þoku, klettum og mjög gömlum húsum.kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, June 2, 2008
Síðasti skóladagurinn í bili
Jæja þá er þetta að verða búið ( altso vinnan í skólanum, lífið heldur áfram!) Eftir hád. fer litla kennslukonan að undirbúa ferðalag út í heim. Hún byrjar á því að fá sér sumardekk undir litla jeppann sinn og athuga hvort evrurnar hafa skilað sér í Kardimommubæinn. Á morgun er svo áætlað að keyra til höfuðstaðarins og gista í námunda við Hallgrím Pétursson. Það verður nú reyndar stutt gist, því svo flýgur konan til Torino. Heimkoma er áætluð 10. júní. Í dag þarf að ganga frá farangri setja blóm í baðker svo bóndinn eigi hægara um vik að muna eftir vökvun! Sem sagt nóg að gera og litla kennslukonuhjartað farið að slá örar af spenningi.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, May 29, 2008
skólaferðalög
Í gær fór litla kennslukonan í lítið ferðalag með litlu nemendum sínum. Gengið var niður af fjalli, leiðin var nokkuð brött og mikið um lausa steina , möl, og lækur skoppaði við hlið göngufólks langleiðina.
Í dag á litla kennslukonan erfitt með gang en þarf þó að mæta í skólann sinn og skoða vorsýningar og ganga frá þeim síðan fyrir skólaslit á morgun.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Í dag á litla kennslukonan erfitt með gang en þarf þó að mæta í skólann sinn og skoða vorsýningar og ganga frá þeim síðan fyrir skólaslit á morgun.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Wednesday, May 28, 2008
evruskortur
Kreppa hvað ! segi ég nú bara! Þar sem kennslukonan er á leið til Ítalíu þar sem besti ís í heimi er búinn til þá ákvað hún að krækja sér í nokkrar evrur til að geta keypt sér ís auðvitað . Hún skellti sér því í Kardimommubæinn ( lesist Ólafsvík) og fór í sinn viðskiptabanka. Þar er henni tjáð að engar evrur séu til nema í 5 evru seðlum. Það þótti ekki nógu gott og skrölti því frúin eftir götunni ( fram hjá dýrindis bakaríi) og í næsta banka. Þar fór allt á s0mu leið. Evrurnar koma víst í bæinn í dag. Allir eru á leið til útlandanna. Svo líklega er ekki kreppa hjá útgerðarmönnum. En það ku vera hægt að redda þessu öllu í Leifsstöð.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, May 26, 2008
Ítalíukvöld
Þá hefur litla kennslukonan hafið störf á ný í litla skólanum sínum eftir vel heppnað helgarfrí. Það ótrúlega gerðist hjá kennslukonunni að henni tókst að ljúka sínum verkefnalista sem var þó ærinn eins og sjá má í færslu frá því fyrir helgi. Einnig tókst henni að bæta á hann örlitlu eins og borðhaldi á Hótel Búðum á sunnudagskvöldið sem auðvitað var bara frábært. Í dag er því litla kennslukonan bara nokkuð bjartsýn á að það takist að ljúka öllum störfum við skólann í vor.
Nú er hugurinn að nálgast Ítalíu og fylgist hún því vel með gengi íslensku krónunnar og evrunnar. Líklega er rétt að festa kaup á nokkrum evrum, svo hægt sé að kaupa sér ís á Ítalíunni.
Kennslukonan er ein heima þessa kvöldstund því bóndinn skrapp á tónleika í Rvík , ætlar að hlusta á Dylan og kaupa dekk undir vörubíla. Hjá kennslukonunni er spaghettiréttur í Ítölskum anda og einnig stundar hún útsaum eins og sannri hefðarkonu sæmir. Sem sagt allt voða rólegt og fínt ( það er líka rólegt þó bóndinn sé heima !).
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Nú er hugurinn að nálgast Ítalíu og fylgist hún því vel með gengi íslensku krónunnar og evrunnar. Líklega er rétt að festa kaup á nokkrum evrum, svo hægt sé að kaupa sér ís á Ítalíunni.
Kennslukonan er ein heima þessa kvöldstund því bóndinn skrapp á tónleika í Rvík , ætlar að hlusta á Dylan og kaupa dekk undir vörubíla. Hjá kennslukonunni er spaghettiréttur í Ítölskum anda og einnig stundar hún útsaum eins og sannri hefðarkonu sæmir. Sem sagt allt voða rólegt og fínt ( það er líka rólegt þó bóndinn sé heima !).
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Friday, May 23, 2008
helgarfrí
Í dag á litla kennslukonan óvænt frí frá kennslu og skólastörfum. Það kom nefnilega í ljós að hún átti inni einn dag. Nemendur eru líka allir fríi ,vegna dugnaðar í vikunni kláruðust öll verkefni og svo nennir heldur enginn að vera í skóla lengur (en það má helst ekki segja upphátt svo kennslukonan skrifar þetta bara). Þetta frí verður notað til að ganga frá einkunnum 3-10. bekkjar í íslensku, samfélagsfræðum, þvo þvott, skúra gólf ,almenn tiltekt, elda mat, baka jafnvel, passa hunda, (og labbakút jafnvel á laugardagskvöldið), nú svo á að njóta útiveru, lesa, sauma, hafa samband við ættingja og vini. Horfa á imbakassann. Sem sé gott að vera í fríi. Kennslukonan skilur eiginlega ekki hvernig hún hefur tíma til að kennaNú er bara ein vika eftir með nemendum, síðan nokkrir starfsdagar og að lokum ítalíuferð að skoða skóla og skemmta sér. Litla kennslukona er bæði með farseðla og vegabréf í skotstöðu.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Tuesday, May 20, 2008
Batmanbjóð
Litla kennslukonan brá sér bæjarleið um síðustu helgi. Það þótti henni mjög skemmtilegt enda langt síðan hún hafði farið svona langt út í heim. Hún þurfti þó að hafa með sér skólatösku og tölvuóg útbúa nokkur íslenskupróf, fór létt með það. Það sem kennslukonunni þótti einna skemmtilegast í ferðinni að hún lenti í Batmanbjóði á laugardagskvöldinu og sendir hún hér inn mynd því til sönnunar. Reyndar ferðasti kennslukonan stundum í leigubílum og var ein ferðin sérstaklega minnisverð og verður sagt frá henni jafnvel síðar.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Wednesday, May 14, 2008
svart og hvítt
Monday, May 12, 2008
Sunday, May 11, 2008
Krían mætt
Þá er blessuð krían mætt á svæðið kom í hádeginu í gær í fjöruna við Ósakot. Það sást til hennar koma í stórum flokki og með miklu gargi. Ígær var hreinsunarátak fyrir neðan Ósakot að Búðaósi ( áður Hraunhafnarósi) og týnt upp alls kyns plastdrasl, og netadræsur. Þarna voru að verki landeigendur og afkomendur. Frá Kálfárvöllum, Bjarnafossi , Hraunhöfn og sumarbústaðafólk. Einnig voru með í för Týra og Fluga. Við Týra unnum ekki mjög vel saman, ég fann plastbrúsa og hún tók og hljóp með og faldi svo sennilega hef ég alltaf verið að finna sama brúsann. Mjög gott veður var, logn og örlitlir skúrir. Um kvöldið var svo öllum boðið í grill til lögmannsins og fjölskyldu hans í bústaðnum ( vorum rúmlega 20) Magnús Guðni sló að sjálfsögðu í gegn. Og endað var svo á litlum varðeld í fjörunni. Allt fór þetta friðsamlega fram. Í dag er hinsvegar þoka og rigning og nú er þetta orðið nokkuð gott fyrir gróðurinn og má alveg stytta upp. Á föstudaginn fór litla kennslukonan ásamt nemendum og öðrum kennurum í stutt ferðalag, keyrt var að Djúpalónssandi og síðan gengið til Dritvíkur með í för var franskur kennari sem var í heimssókn hjá okkur. Hann kennir í litlum skóla í ölpunum og þangað fer kennslukonan eftir 3 vikur. Ferðin gekk vel enginn hrundi fram af klettum. Þetta hafa því verið miklir útivistardagar. Jæja þá er þessum óskipulagða pistli lokið.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Friday, May 9, 2008
vor í sveitinni
Saturday, May 3, 2008
undur og stórmerki
Heil og sæl hér í sveit gerðist þau tíðindi nú rétt í þessu að það fór að rigna ! Já segi og skrifa og það er líka logn! Legg ekki meira á ykkur í bili.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
p.s. vona að rigni eldi og brennisteini næstu vikuna ( hélt að ég ætti nú ekki eftir að segja þetta eða öllu heldur skrifa ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
p.s. vona að rigni eldi og brennisteini næstu vikuna ( hélt að ég ætti nú ekki eftir að segja þetta eða öllu heldur skrifa ;-)
Tuesday, April 29, 2008
vindbarin skreið!
jæja nú er þetta orðið gott ! hér er búið að vera ansi kröftugt rok og þurrkur. íbúar í Staðarsveit fara að líta út eins og skreið vel þurrkuð ! Vötnin rjúka í allar áttir, skítakuldi og snjóar í efstu fjallatoppum. Líklega á Pollíönnuleikurinn vel við núna , við höfum það fínt engin hlýnun jarðar hér og allir eiga hús til að vera í meðan rokið gengur yfir ( fýkur auðvitað!) Og svo snjóar ekki mikið líkt og á norðurlandinu.
Það er sem sé gluggaveður og varla það því ég verð hálffúl þegar ég lít út og sé að moldin rýkur ( og ekki í logninu) og Vindgnauð er sjálfsagt rómantískt í 19. aldar róman en ekki hér á Hraunhafnarsetrinu.
Nú fýkur þessi pistill út í netheima, Guð má vita hvar hann lendir.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
p.s að öðru leyti eru allir hressir hér fyrir utan hósta,
Það er sem sé gluggaveður og varla það því ég verð hálffúl þegar ég lít út og sé að moldin rýkur ( og ekki í logninu) og Vindgnauð er sjálfsagt rómantískt í 19. aldar róman en ekki hér á Hraunhafnarsetrinu.
Nú fýkur þessi pistill út í netheima, Guð má vita hvar hann lendir.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
p.s að öðru leyti eru allir hressir hér fyrir utan hósta,
Thursday, April 24, 2008
sumarið framundan? rigning?
Það fraus ekki saman í nótt, þ.e. sumar og vetur. Spurningin snýst nú um hvort eigi að fá sér smartan regngalla og flott gúmmistígvél ?Frúin á fína regnhlíf.
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
nóg að gera í kubbunum !
Wednesday, April 23, 2008
Síðasti vetrardagur
jæja þá er litla kennslukonan búin að fara alla leið að Reykhólum á Barðaströnd með hóp nemenda frá 3-7. bekk. Það gekk allt vel enda kom kennslukonan varla upp orði frekar en söngkonan í Kardimommubænum , gat því lítið skammast. Það verður að segjast að kvef og hæsi er ekki gott í kennarastarfinu en nemendur virðast vera þokkalega ánægðir með það ástand hugsið ykkur ! En heim var komið rúmlega fimm ( það tekur tvo og hálfan tíma að keyra þangað) og það verður að segjast að litla kennslukonan var ákaflega glöð þegar hún komst heim til sín. Henni bauðst nú reyndar að fara á árshátíð með 5- 7 bekk úr öllum Snæfellsbæ í félagasheimilinu Klifi í kvöld en húsvörður skólans fórnaði sér í það. Svo nú verður bara þögnin ein sem ríkir á Hraunhafnarsetrinu því bóndinn á erfitt með mál líka sökum kvefs. En samt sem áður er stefnt á sumarbústaðaferð á Freyjugötu um helgina enda búið að boða til húsfundar í kjallaranum kl 11 f.h. á laugardag.
En nú er bara að vona að frjósi saman vetur og sumar í nótt.
Gleðilegt sumar
kveðja Frúin í Hraunhöfn
En nú er bara að vona að frjósi saman vetur og sumar í nótt.
Gleðilegt sumar
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, April 21, 2008
kóngur í ríki sínu
útivist í sveitinni
Thursday, April 17, 2008
Frönsk sveitakrá
Wednesday, April 16, 2008
kennslukonustörf
Jæja þá hefur kennslukonan stundað sín störf í þrjá daga af þó nokkrum krafti. Nemendur á miðstigi fengu það verkefni að velja sér kjörbók eftir Íslenskan höfund ( frúin orðin leið á Harry Potter sögum ) og skrifa um þetta stutta ritgerð. Nákvæmar leiðbeiningar fylgdu þessu að sjálfsögu skriflega, því í hraða nútímans man enginn neitt ef ekki er skrifað niður. Nem. 5-6 bekkjar fengu einfaldari útfærslu en 7-8 bekkur. En sem sagt skiladagur er 6. maí. Það kom í ljós að enginn les sér lengur til ánægju og það skilur litla kennslukonan ALLS EKKI ! Sem sagt verið að pínu litlu sætu sveitabörnin æ æ ( ha ha ha ..) Nú svo var búið til fínt íslenskuverkefni fyrir 3-4 bekk en kennslukonan sér að það verður sull og vinna svo hún er að safna kjarki til að geta lagt það fyrir , hún fann nefnilega upp málfræðiverkefni sem verður útfært í klippimyndum og málningarsulli ásamt rituðu máli já já andinn kom yfir hana ( og fór sem betur fer ekki fyrr en búið var að útfæra verkefnið!)
Og nú er bara að klára vikuna , fara í hundana um helgina en stefnan er síðan sett á höfuðborgarsvæðið í sumarbústað á Freyjugötu um þar næstu helgi.
Mikið verður nú gott að fá sumarfrí ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Og nú er bara að klára vikuna , fara í hundana um helgina en stefnan er síðan sett á höfuðborgarsvæðið í sumarbústað á Freyjugötu um þar næstu helgi.
Mikið verður nú gott að fá sumarfrí ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Sunday, April 13, 2008
Rólegheit
afmælisbarn dagsins
Thursday, April 10, 2008
Leonardo Da Vinci
tíðindalaust af vesturvígstöðvunum
Jæja þá er kennslukonan farin að sjá fyrir endann á vinnuvikunni . Í dag átti að vera stutti dagurinn í kennslu en vegna veikinda kennara og fundarstarfa hjá öðrum þá var aukakennsla. hjá litlu kennslukonunni. Yfirleitt finnst henni það bara fínt en þar sem hún fór tímabundið í hundana ( sennilega til morguns) þá truflaði þetta verulega skipulag dagsins. En sem sagt nú er bara að klára morgundaginn , það er annars ósköp rólegt hér ( nema þá helst í veðrinu vetur í morgun en vor eftir hád). Bóndinn stundar sína vinnu á Malarrifi og hans næsti frídagur er líklega um verslunarmannahelgina og síðan á Þorláksmessu!
Stórafmælið er svo á sunnudaginn þegar erfðaprins Ólafsvíkur verður 1 árs og miðað við umfang veislunnar og skipulag þá trúi ég að forsetahjónin verði á svæðinu ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Stórafmælið er svo á sunnudaginn þegar erfðaprins Ólafsvíkur verður 1 árs og miðað við umfang veislunnar og skipulag þá trúi ég að forsetahjónin verði á svæðinu ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Tuesday, April 8, 2008
þriðjudagsmorgnar
Þriðjudagsmorgnar eru eins og mánudagsmorgnar, en í morgun vissi kennslukonan nokkurn veginn hvað stæði til í dag. Og dagurinn gekk bara þokkalega, nemendur voru að vísu ekki alveg jafnánægðir með speki dagsins, en létu sig hafa það. Það er nefnilega erfitt að lauma sér úr sveitaskólanum og skrópa, það er svo langt heim ha ha...
Í kvöld getur kennslukonan litla valið um að fara á tvo fundi jú eða mæta á hvorugan og sofa yfir sjónvarpi. Hún hefur ákveðið að mæta á fund í litla skólanum sínum þar sem verður fræðsla um átröskun, vaxandi vandamál í vestrænum samfélögum. Fundur í Ólafsvík hjá Soroptimistum verður aðvera án hennar í þetta sinn.
Vonandi verður nú fræðslufundurinn búinn á skikkanlegum tíma því það er nefnilega fínn breskur krimmi í sjónvarpinu eftir tíu-fréttirnar;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Í kvöld getur kennslukonan litla valið um að fara á tvo fundi jú eða mæta á hvorugan og sofa yfir sjónvarpi. Hún hefur ákveðið að mæta á fund í litla skólanum sínum þar sem verður fræðsla um átröskun, vaxandi vandamál í vestrænum samfélögum. Fundur í Ólafsvík hjá Soroptimistum verður aðvera án hennar í þetta sinn.
Vonandi verður nú fræðslufundurinn búinn á skikkanlegum tíma því það er nefnilega fínn breskur krimmi í sjónvarpinu eftir tíu-fréttirnar;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, April 7, 2008
mánudagar
Mánudagur á Hraunhafnarsetrinu er svona: staulast fram úr rúmi, kaffikanna sett í gang, staulast að baðherbergi þar sem vatni er gusað yfir andlit og kennslukonuandlit málað ( getur verið töluverð vinna!) bóndinn sest strax með kaffibollann ómálaður. Í morgun vissi kennslukonan að eitthvað var öðruvísi við daginn í dag en mundi bara ekki hvað það var. Hún ákvað samt að skella sér í litla skólann sinn. Hún keyrði í rólegheitum alein á veginum, fréttir rásar 1 streymdu inn um annað eyrað og mjög fljótleg út um hitt ( stundum áhyggjuefni hvursu hratt gegnumstreymið er í gegnum höfuð kennslukonunnar) Eitthvað var að brjótast um í litla höfðinu, hvað var þetta með daginn í dag?
í skólanum starfar stuðningsfulltrúi ( hugsaður fyrir nemendu en nýtist einnig kennurum) sem gat upplýst fyrir kennslukonunni að í dag væri foreldradagur. Foreldradagar fara þannig fram að foreldrar koma í skólann og dást að verkum barna sinna, tala við kennara um námið ( þó ekki alltaf) síðan er teflt, tekið í spil, og drukkið kaffi, allt mjög rólegt og gott. Og þannig var það einnig í dag. Í lok dagsins var kennslukonan nokkuð ánægð með sig og ætlar að hafa það náðugt í kvöld, sitja við útsaum og horfa á amerískan glæpaþátt.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
í skólanum starfar stuðningsfulltrúi ( hugsaður fyrir nemendu en nýtist einnig kennurum) sem gat upplýst fyrir kennslukonunni að í dag væri foreldradagur. Foreldradagar fara þannig fram að foreldrar koma í skólann og dást að verkum barna sinna, tala við kennara um námið ( þó ekki alltaf) síðan er teflt, tekið í spil, og drukkið kaffi, allt mjög rólegt og gott. Og þannig var það einnig í dag. Í lok dagsins var kennslukonan nokkuð ánægð með sig og ætlar að hafa það náðugt í kvöld, sitja við útsaum og horfa á amerískan glæpaþátt.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Saturday, April 5, 2008
stutt ferðasaga
þessa dagana takmarkast sjóndeildarhringur minn af svæðinu frá Hraunhafnarsetrinu og að Lýsuhólsskóla ( um helgar leyfi ég mér að brjóta þetta upp og skjótast í búð til Ólafsvíkur.) Í gær var ég einu sinni sem oftar á leið til vinnu og ákvað að fara á mínum frúarbíl. Gott veður var og pínu vorstemning á hlaðinu í Hraunhöfn, kennslukonan ákvað því að skella sér í pils og vera pínu fín þennan síðasta dag vikunnar í kennslu. Nú svo leggur hún af stað á sínum frúarbíl er alein á veginum, hlustar á útvarpsfréttirnar þar sem fjallað var um umferðarmenningu höfuðborgarinnar , þar var allt meira og minna fast og enginn komst neitt. Um það bil sem kennslukonan er að fara hugsa heimspekilega um umferð og heimsvandamálin þarna í lognblíðunni í sveitinni sinni. Þá skyndilega brestur á með vindhviðu og bíll kennslukonunnar hendist til , hjartað sló örlítið hraðar, og hún varð undrandi á þessu . Svo brast lognið á aftur og kennslukonan gat haldið áfram ein á veginum í litla skólann sinn þar sem litlu nemendurnir biðu í ofvæni eftir speki dagsins.
Það hefði nú verið þokkalegt að fjúka út af þarna í logninu í Staðarsveit hugsaði hún, hefði einhver trúað henni?
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Það hefði nú verið þokkalegt að fjúka út af þarna í logninu í Staðarsveit hugsaði hún, hefði einhver trúað henni?
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Thursday, April 3, 2008
vorið í húsasmiðjunni
Byko, Húsasmiðjan og Rúmfatalagerinn segja mér að núna sé vorið komið og því til staðfestingar fæ ég senda hina ýmsu bæklinga heim. Hér er norðan skítakuldi og snjókorn á sveimi, ( altso úti !) Kannski ég skelli mér bara í Húsasmiðjuna.
kveðja Frúin í Hraunöfn
kveðja Frúin í Hraunöfn
Monday, March 31, 2008
umferð
úff hvað ég er fegin að þurfa ekki að keyra um í Reykjvíkinni núna. Það er svo leiðinlegt að vera í Ártúnsbrekkunni!
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Sunday, March 30, 2008
vor-vetur tímabilið
Eftir smá sýnishorn að vori í gær fengum við vetur í dag. snjór og rok og allt þetta hefðbundna, sem sé mjög rólegt á sveitasetrinu þ.e. innandyra.. Hundareru farnir til stórborgarinnar Ólafsvíkur og köttturinn er kominn á sinn hefðbundna stað í stofunni, hann fékk nýjan þorsk í kvöldmat og sefur nú í fínasta stól stofunnar. Aðrir á bænum reyna að halda vöku sinni aðeins lengur.
kveðja Frúin í Hraunhöfn.
kveðja Frúin í Hraunhöfn.
Saturday, March 29, 2008
Hundalíf
Góðan daginn það er helst að frétta héðan að við Eyjólfur erum farin í hundana, eins og svo oft áður! Að öðru leyti er bara slugs og sumarbústaðalíferni hér í sveit. Það er svona dæmigert gluggaveður mjög íslenskt, rok , sól og skítakuldi! Ég ætla nú samt að herða mig út eftir hád. með hundana
kveðja Frúin í Hraunhöfn ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn ;-)
Wednesday, March 26, 2008
dagurinn í dag
Nú er ég að komast í vorstuð ( já það er of snemmt ég veit það !) í morgun þegar ég gekk niður á þjóðveg í veg fyrir skólabílinn var fjöldi spora eftir ref eða refi, í hádeginu flaug svo örn yfir skólasvæðinu ( náðist ekki á mynd), sólin fór að skína og snjórinn að bráðna pínu. Það var samt ekkert vorlegt að horfa út um gluggann á kennslustofunni eins og sjá má hér á myndinni. En það er bjart fram eftir öllu og aldrei þessu vant alveg logn!
Hér á bæ er allt með hefðbundnu sniði, ég hef skrölt fram í þvottahús og sett þvottavél í gang og skellti í eina sjávarréttapitsu sem verður kvölmaturinn hér ( þ.e ef Eyjólfur skilar sér úr vinnunni á skikkanlegum tíma!) Það er nefnilega að koma sumarvinnutíminn hans sem þýðir að farið er af stað um klukkan hálfátta á morgnana og komið heim líklega fyrir miðnætti ójá. Nemendur komu þokkalega stemdir undan páskafríinu og öll hafa úðað í sig töluverði magni af páskaeggjum.
Kveðja frá frúnni í Hraunhöfn ( virðulegt ekki satt;-) )
Hér á bæ er allt með hefðbundnu sniði, ég hef skrölt fram í þvottahús og sett þvottavél í gang og skellti í eina sjávarréttapitsu sem verður kvölmaturinn hér ( þ.e ef Eyjólfur skilar sér úr vinnunni á skikkanlegum tíma!) Það er nefnilega að koma sumarvinnutíminn hans sem þýðir að farið er af stað um klukkan hálfátta á morgnana og komið heim líklega fyrir miðnætti ójá. Nemendur komu þokkalega stemdir undan páskafríinu og öll hafa úðað í sig töluverði magni af páskaeggjum.
Kveðja frá frúnni í Hraunhöfn ( virðulegt ekki satt;-) )
Tuesday, March 25, 2008
jæja
jæja orðið gott í dag, í tölvuleik , aldrei að vita nema pistlar frá lífinu á Hraunhafnarsetrinu rati hingað. kveðja frúin í Hraunhöfn
Subscribe to:
Posts (Atom)
útsýnið úr kennslustofunni í dag
útsýni af skólagangi föstud. 4. april
frá Hraunhafnarsetrinu 5. april
Hraunhafnarsetrið
aristókratinn
sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum


































