
Friday, January 2, 2009
Monday, November 10, 2008
Fyrirsagnir
Nokkrar fyrirsagnir úr netmogga hafa hrifið mig þessa dagana t.d. " ráðherrarnir koma af fjöllum " minnir á sagnir um jólasveinana og kannski ekki skrítið ? Önnur var um daginn "druslurnar úr landi" þá hélt ég að ég væri að lesa um "auðmenn " þjóðarinnar og bankastjóra en það var nú smá misskilningur í mér. Og síðan er það fyrirsögnin "þjófur iðrast" og þá var ekki verið að tala um útrásarvíkinginn. Svona er nú auðvelt að misskilja hlutina ef maður les ekki alla fréttina.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Wednesday, November 5, 2008
köttur og mús
hér í sveit hefur það tíðkast að halda ketti , þeir eiga síðan að sjá um að mýs haldi sig úti. Á Hraunhafnarsetrinu er þetta ekki svona. Að vísu er hér háaldraður og virðulegur köttur, svartur og glansandi. Hann er mikill músavinur. Því er það þannig að þegar hausta tekur þá bíður hann þeim inn sleppir þeim lausum svo þær geti virt fyrir sér þessi miklu húsakynni. Sem þær svo gera. Kötturinn fær sér kattarmat og mjólk og leggur sig fram á næsta kvöld, þá er kominn tími til að bjóða næstu mús. Húsfreyjan á setrinu er ekki jafnánægð með þetta. Og mýsnar reyndar ekki heldur því þær eiga það til að deyja úr hræðslu gjarnan á miðju stofugólfi. Stundum er þó hægt að koma þeim lifandi út aftur. Allt væri þetta kannski sárasaklaust ef húsfreyjunni væri ekki svona meinilla við mýs. Og í dag þurfti hún heilan klukkutíma til að safna kjarki til þess að koma framliðinni mús úr húsi. En að lokum tókst það með hjálp fægiskóflu og kústs með löngu skafti! Svo nú er bara að bíða og sjá hvort kötturinn bíður annarri mús inn.
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, November 3, 2008
Vetrarfrí
Heil og sæl , litla kennslukonan er ekki í miklu bloggstuði þessa dagana. Hún er orðin þreytt á kreppu og peningatali. Kennslukonan fór í vetrarfrí á fimmtudaginn og það að klárast í kvöld. Það undarlega er að þegar kennslukvindan fór í frí þá tók húsmóðirin völdin og skipulagsstjórinn fór á fullt! Ekkert frí þar. Farið var með tölvu frúarinnar í hreinsun og stækkun ( ég kann ekki að útskýra þetta nánar) Farið í heimssóknir og að lokum í Bónus , nema hvað . Helgin var svo helguð barnabarni og fjölskyldu frúarinnar og tiltektir. Aðeins gripið í prjóna og lestur. En nú þarf að glugga í skólatöskuna og skipulag morgundagsins. . Mikið væri nú gott að hafa aðeins lengra frí ;-)
kveðja Frúin í Hraunhöfn
kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, October 27, 2008
Himintunglin
Himintunglin blessa þig í dag með því að draga úr athyglissýki þinni. Notaðu tækifærið og vertu ein í friði með góðri bók - og nokkrum súkkulaðibitum.
Hvað er hægt annað en að fara eftir þessu á þessum síðustu og verstu ?
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Hvað er hægt annað en að fara eftir þessu á þessum síðustu og verstu ?
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Monday, October 6, 2008
það er vont en það venst
Nú er það pollíönnuleikurinn ,sem allir eru að fara í.
Mér hafa flogið í hug ljóðlínurnar: "það er vont en það venst svo versnar það stöðugt svo verður það stöðugt verra en orð fá lýst ..." osfrv. Man nú ekki alveg nógu vel framhaldið en þetta lýsir kannski helgarumræðunni ? veit það ekki. En sem sé áfram Pollíanna!!
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Mér hafa flogið í hug ljóðlínurnar: "það er vont en það venst svo versnar það stöðugt svo verður það stöðugt verra en orð fá lýst ..." osfrv. Man nú ekki alveg nógu vel framhaldið en þetta lýsir kannski helgarumræðunni ? veit það ekki. En sem sé áfram Pollíanna!!
Kveðja Frúin í Hraunhöfn
Sunday, September 28, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)
útsýnið úr kennslustofunni í dag
útsýni af skólagangi föstud. 4. april
frá Hraunhafnarsetrinu 5. april
Hraunhafnarsetrið
aristókratinn
sá eini sanni
Undir þessum snjóskafli ku vera mikill kraftur ! Og mun vera gott andlega að búa nálægt honum

